Áfram líkur á eldgosi á Sundhjúksgígaröðinni - gæti hafist með litlum fyrirvara
Eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara
Landris vegna kvikusöfnunar mælist áfram við Svartsengi og gæti það leitt til eldgoss. Mat vísindamanna er að ef til eldgoss komi, sé líklegast sé að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnjúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells, eða á svipuðum slóðum og gaus 18. desember.
Eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið kæmu fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni. Í aðdraganda gossins 18. desember liðu um 90 mínútur frá því að fyrstu merki sáust þangað til að kvika var komin upp og eldgos hafið.
Undanfarna daga hefur skjálftavirkni á svæðinu verið afar væg. Ef kvika færi að leita til yfirborðs, má búast við að skjálftavirknin samfara því væri svipuð og sást í aðdraganda gossins 18. desember, bæði hvað varðar stærð skjálfta og fjölda þeirra. Áhrif þeirrar skjálftavirkni mun gæta bæði í Svartsengi og í Grindavík. Miðað við stöðuna núna, er afar ólíklegt að við fáum aftur jafn öfluga skjálftavirkni og varð þegar kvikugangurinn stóri myndaðist 10. nóvember.
Nýtt hættumatskort byggt á túlkun nýjustu gagna og þróun atburðarásarinnar síðustu daga er í vinnslu og verður gefið út síðar í dag.