Áfram léttskýjað
Veðurspá fyrir Faxaflóa: Norðvestan og vestan 3-8. Léttskýjað en þokubakkar við ströndina. Hiti á bilinu 12 til 20 stig, hlýjast í uppsveitum. Það þykknar upp í kvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Hæg vestlæg átt og skýjað með köflum, en súld eða þokuloft við ströndina norðan- og vestantil. Síðdegisskúrir norðaustanlands og syðst á landinu. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast inn til landsins.
Á laugardag:
Suðlæg átt, 3-8 m/s og víða dálítil væta. Hiti 8 til 15 stig.
Á sunnudag:
Sunnanátt, rigning og milt veður, en úrkomulítið norðaustanlands.
Á mánudag:
Suðvestan átt, rigning vestanlands en úrkomulítið á Austfjörðum. Hiti 5 til 12 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðanátt með vætu, einkum um norðan- og vestanvert landið og kólnandi veðri.
Á miðvikudag:
Norðvestanátt, súld norðanlands en skýjað með köflum sunnanlands. Hiti 4 til 10 stig.
Mynd: Frá Garðsskaga.VF/elg