Áfram frost
	Minnkandi norðaustanátt við Faxaflóa, 8-15 m/s fyrir hádegi og víða bjart. Dregur úr vindi í nótt, norðaustlæg átt 3-10 á morgun og skýjað með köflum. Frost 1 til 7 stig.
	
	Veðurhorfur á landinu
	
	Minnkandi norðan- og norðaustanátt, víða 10-18 m/s um hádegi, en 18-25 A- og SA-til. Él N- og A-til, annars að mestu þurrt og bjart með köflum, en þó eru víða líkur á skafrenningi. Dregur áfram hægt úr vindi þegar líður á daginn, norðaustan 5-13 á morgun og víða él eða dálítil snjókoma, en 10-15 SA-til. Frost 0 til 8 stig.
	Veðurhorfur á landinu næstu daga
	
	Á miðvikudag:
	Gengur í suðaustan 18-23 m/s með snjókomu og minnkandi frosti, en síðar slydda syðst og hlánar. Dregur úr vindi um kvöldið.
	
	Á fimmtudag:
	Gengur í norðan og norðvestan 18-23 m/s með snjókomu fyrst vestantil, en þurrt að kalla S-lands. Mun hægari á A-verðu landinu fram undir kvöld, en fer þá að lægja V-til. Frost 0 til 6 stig, en víða frostlaust með suðurströndinni.
	
	Á föstudag:
	Minnkandi norðvestanátt og dálítil él norðaustantil, en gengur í suðaustan og sunnan hvassviðri með snjókomu þegar líður á daginn, fyrst suðvestantil. Hiti breytist lítið.
	
	Á laugardag:
	Suðvestlæg átt og él, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Frost 0 til 8 stig.
	
	Á sunnudag:
	Útlit fyrir suðvestæga eða breytilega átt með dálitlum éljum og frosti um allt land.


 
	
					 
	
					


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				