HSS
HSS

Fréttir

Áfram fallegt veður
Miðvikudagur 7. febrúar 2007 kl. 09:08

Áfram fallegt veður

Á Garðskagavita voru ANA 9 og 0,6 stiga frost kl. 8.
Klukkan 6 í morgun voru austan 3-10 sunnantil á landinu, en hægviðri norðantil. Skýjað að mestu á Austurfjörðum og Suðausturlandi en annars léttskýjað eða heiðskírt. Frostlaust í Eyjum en annars frost um allt land, kaldast 18 gráður á Þingvöllum.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Austan 3-8 og léttskýjað. Frost 0 til 12 stig, mildast við ströndina.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Hæg austlæg eða breytileg átt og léttskýjað að mestu, en austan 5-10 m/s sunnantil. Stöku él suðaustanlands síðdegis og á morgun. Frost 2 til 8 stig, en allt að 20 inn til landsins. Hlýnar lítilega á morgun.

 

Mynd: Veður hefur verið með fallegasta móti síðustu daga eins og þessi mynd frá Fitjum ber með sér.

 

VF-mynd: Ellert Grétarsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn