Áfram búist við að eldgos muni hefjast
Engar breytingar hafa orðið á skjálftasvæðinu í nótt, áfram er mikil virkni en alls voru um 700 skjálfar í nótt, sá stærsti 3,8. Í heildina eru skjálftarnir orðnir 11.500 síðan virknin byrjaði á þriðjudaginn. Sá stærsti í nótt fannst á höfuðborgarsvæðinu en langflestir skjálftarnir eru það litlir að þeir finnast ekki.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, segir atburðarásina þessa dagana svipa mikið til síðustu gosa og á frekar von á að gos muni hefjast og ef svo verður, á næsta sólarhring eða -hringum.