Áfram blautt og hvasst
Faxaflói: Austanátt 13-20 með slyddu og síðar rigningu. Norðaustan 8-15 eftir hádegi en hægari undir kvöld. Vestan 10-18 sunnantil seint í kvöld. Suðvestan 8-10 síðdegis á morgun og slydduél. Hiti 1 til 6 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vaxandi A-átt, 13-18 og slydda, en síðar rigning með morgninum, en snýst í vestan 8-13 í kvöld. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Suðvestlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri A-lands. Hiti kringum frostmark. Suðaustan 8-13 og rigning SV-lands um kvöldið og hlýnar.
Á sunnudag:
Sunnanátt og vætusamt, en þurrt að kalla NA-lands. Hiti 2 til 7 stig.
Á mánudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestanátt með éljum S- og V-lands og kólnandi veðri.