Áfram belgingur
Það heldur áfram að gusta um íbúa við Faxaflóann en veðurspáin gerir ráð fyrir suðvestan 13-20 m/s og skúrum í dag. Heldur hægari síðdegis. Hvessir aftur í kvöld. Suðvestan og síðar sunnan 15-20 og rigning í nótt og á morgun. Hiti 8 til 12 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Sunnan 10-15 m/s og rigning, en snýst í suðvestan 10-18 með skúrum vestantil þegar líður á daginn. Kólnandi veður í bili.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestan 10-18 m/s og skúrir, en léttskýjað norðaustantil. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast norðaustantil.