Heilsugæslan Höfða bólus. 2026
Heilsugæslan Höfða bólus. 2026

Fréttir

Áform um allt að sjö hæða fjölbýlishús við Iðjustíg
Tillagan, sem JeES arkitektar unnu fyrir hönd Ásgarðs fasteignafélags ehf., boðar afgerandi breytingar á götumyndinni við Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti þar sem stefnt er að uppbyggingu á allt að sjö hæða fjölbýlishúsi.
Mánudagur 22. júní 2026 kl. 10:00

Áform um allt að sjö hæða fjölbýlishús við Iðjustíg

Minnihlutinn lýsir yfir áhyggjum af auknu byggingarmagni og umferð

Miklar skipulagsbreytingar eru í bígerð í miðbæ Reykjanesbæjar eftir að skipulagsráð samþykkti, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu á fundi sínum þann 19. júní síðastliðinn. Tillagan, sem JeES arkitektar unnu fyrir hönd Ásgarðs fasteignafélags ehf., boðar afgerandi breytingar á götumyndinni við Hafnargötu, Iðjustíg og Pósthússtræti þar sem stefnt er að uppbyggingu á allt að sjö hæða fjölbýlishúsi.

Allt að 94 íbúðir og neðanjarðarbygging

Breytingin felur í sér að lóðir á svæðinu verða sameinaðar og stækkaðar, en stærsta stökkbreytingin lýtur að sjálfu byggingarmagninu. Heimilað verður að reisa 4–7 hæða fjölbýlishús með verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð, íbúðum á efri hæðum og bílgeymslu neðanjarðar. Áætlað er að byggja allt að 94 íbúðir á reitnum.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Bakhjarlar tillögunnar segja markmiðið vera að styrkja miðbæjarstarfsemina, þétta byggð á þegar röskuðu svæði og fegra götumyndina við Hafnargötu og Njarðarbraut, í samræmi við Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020–2035.

Minnihlutinn dregur uppbygginguna í efa

Tillagan mætti hins vegar andstöðu minnihlutans í skipulagsráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins, þeir Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Birgir Már Bragason, greiddu atkvæði gegn því að auglýsa tillöguna og lögðu fram bókun þar sem þeir gagnrýna áformin.

Í bókuninni benda þeir á að breytingin sé gríðarleg, enda verið að fara úr tveimur tveggja hæða byggingum yfir í eina stóra byggingu sem verður allt að sjö hæðir. Þá lýsa þeir yfir áhyggjum af umferðarmálum á svæðinu og velta upp samræmi við aðra nálæga reiti:

„Iðjustígur nýtir sömu umferðarmannvirki og Akademíureiturinn en aðeins 250 metrar eru á milli reitanna tveggja og því tvísýnt hvernig yfirlýsingar um umferðarteppur gilda ekki til jafns á báðum stöðum,“ segir í bókun minnihlutans.

Þá veltu fulltrúarnir tveir því upp hvort þetta skipulag endurspegli nýja „blokkastefnu“ hjá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í bænum.

Deiliskipulagstillagan verður nú engu að síður auglýst og fær almenningur fljótlega tækifæri til að kynna sér áformin og segja sína skoðun á þessari fyrirhuguðu miðbæjaruppbyggingu.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100