Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Aflaverðmætið 187 milljónir króna
Mánudagur 12. júlí 2010 kl. 12:25

Aflaverðmætið 187 milljónir króna

Hrafn GK 111 kom úr mettúr um helgina. Aflaverðmæti skipsins eftir 32ja daga veiðitúr var 187 milljónir króna en gamla metið var slegið um 40 milljónir. Uppistaða aflans var grálúða, þorskur, ufsi og karfi.

Skipstjóri í veiðiferðinni var Bergþór Gunnlaugsson. Þess má geta til gamans að Bergþór og fjölskylda flutti nýlega til Grindavíkur og óhætt að segja að fengur sé í svona aflaklóm fyrir bæjarfélag eins og Grindavík, segir á vef Grindavíkurbæjar.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Mynd: Hrafn GK 111. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25