Fréttir

Afar slök mæting meirihlutans í Umhverfis-  og skipulagsráð
Fimmtudagur 22. júní 2017 kl. 16:00

Afar slök mæting meirihlutans í Umhverfis- og skipulagsráð

-Bæjafulltrúar minnihlutans í Reykjanesbæ ósáttir

Bæjarfulltrúar í minnihluta Reykjanesbæjar eru ósáttir við afar slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans í Umhverfis- og skipulagsráði. Annar nefndarmanna er aðeins með 15% mætingu og hinn var með 60% mætingu. Einnig hafa varamenn ekki verið boðaðir á fundi í forföllum aðalmanna. Á síðasta fundi mættu aðeins þrír af fimm aðalfulltrúum. Þetta kemur fram í bókun minnihlutans á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var 20. júní sl. 

Hér fyrir neðan má lesa bókunina:
Undirritaðir bæjarfulltrúar vekja athygli á og gera athugasemdir við afar slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans hjá Umhverfis- og skipulagsráði. Fyrir utan formann nefndarinnar, sem hefur sinnt sínum verkefnum með ágætum, skipar meirihluti bæjarstjórnar tvo nefndarmenn í Umhverfis- og skipulagsráð. Hefur annar þeirra um 60% mætingarhlutfall á fundi þessa árs en hinn aðeins innan við 15%. Þrátt fyrir slaka mætingu nefndarmanna meirihlutans á fundi heyrir nánast til undantekninga að varamenn þeirra séu boðaðir í staðinn. Á síðasta fundi nefndarinnar voru aðeins 3 af 5 aðalfulltrúum mættir, þar af vantar tvo fulltrúa meirihlutans á fundinn og enginn varamaður var boðaður.
Umhverfis- og skipulagsráð er ein mikilvægasta fastanefnd sveitarfélagsins og gegnir mjög mikilvægu hlutverki í stjórnsýslunni. Á það ekki síst við á uppbyggingartímum eins og nú er, þegar byggingarframkvæmdir íbúðarhúsnæðis eru í blóma auk framkvæmda við iðnaðarsvæðið í Helguvík, óskir um breytingar á skipulagi eru fjölmargar og vinna við aðal- og deiliskipulag stendur yfir.
Skorað er á meirihlutann að sýna málaflokknum meiri áhuga og tryggja að þeir fulltrúar sem skipaðir eru til að sinna verkefninu geri það, eða boði varamenn sína að öðrum kosti.


Undir þetta rita bæjarfulltrúarnir Baldur Þ. Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Kristinn Þór Jakobsson og Magnea Guðmundsdóttir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024