Áfangaskýrsla Samgöngunefndar SSS fær góðar móttökur sveitarstjórnarmanna

Mjög góður árangur hefur náðst í fjölda mála á síðustu mánuðum og árum. Samgöngunefnd SSS telur brýnt að samstaða sé innan svæðisins hvernig forgangsraða megi þeim verkefnum sem fyrir liggja en mörgum verkefnum hefur nú verið lokið og önnur í framkvæmd. Nefndin setti fram eftirfarandi forgangslista í skýrslu sinni:
1.
Suðurstrandavegur. Mikilvægt er að tryggja fjármagn á framkvæmdinni alla leið og kalla eftir loforðum Alþingis með tilliti til breyttrar kjördæmaskipunar.
2.
Lýsing stofnvega. Hér má fyrst nefna Grindavíkurveg, Garðveg og Sandgerðisveg.
3.
Tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt mislægum gatnamótum við nýtt Hæðahverfi í Reykjanesbæ.
Önnur kostnaðarminni verkefni eru eftirfarandi:
1.
Breikkun vegar milli Garðs og Sandgerðis.
2.
Bundið slitlag á vegarslóða frá hringvegi á Reykjanesi að Reykjanestá og á Ósabotnaveg.
3.
Ferðamerkingar á sérgerðu þjónustusvæði ofan Iðavalla og samræming vegmerkinga á svæðinu öllu.
4.
Stækkun hringtorgs á Garðvegi ásamt lagfæringum á aðkomu Helguvíkursvæðisins.
5.
Hringtorg á Grindavíkurvegi vegna Suðurstrandavegar og lagfæringar á stofnvegi.
6.
Ráðstafanir verði gerðar vegna hjólreiðafólks á Reykjanesbraut.
7.
Umhverfisbætur meðfram Reykjanesbraut í samstarfi við Vegagerðina.
8.
Hjóla- og gönguleiðir að og frá FLE á öxlum vega. Tryggja þarf merkingar þar að lútandi.
9.
Undirgöng vegna hestamanna við Mánagrund.
Samgöngunefnd SSS fagnar þeirri vinnu sem FLE hefur ráðist í til þess að fylgja þróun ferðamanna eftir. Mikil aukning ferðamanna kallar eðlilega á ennfrekar úrbætur í samgöngumálum. Nefndin leggur áherslu á að ef núverandi innanlandsflugvöllur í Vatnsmýrinni verði lagður niður verði málið skoðað gaumgæfilega með tilliti til hagkvæmnissjónarmiða. Í þessu sambandi verði skoðað sérstaklega kostir tengingar millilanda- og innanlandsflugs með tilliti til ferðaþjónustu á landsbyggðinni og greiðra samgangna til höfuðborgarsvæðis.
Fram kemur í skýrslu nefndarinnar að fjölgun íbúa á Suðurnesjum var 4,11% frá 1. desember 2004 til 1. september 2005. En 5,48% sé tekið mið af áætlaðri fjölgun ársins 2005, framreiknað miðað við sömu þróun út árið. Ef þessi þróun heldur áfram getur íbúafjöldi á Suðurnesjum farið yfir 20.000 á árinu 2008.
Skýrslu nefndarinnar mun verða dreift til allra sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum, þingmanna kjördæmisins, fulltrúa Vegagerðar og Samgönguráðuneytis um leið og nefndin óskar eftir samstarfi þeirra allra til áframhaldandi góðra verka.
Í lok kynningar á skýrslunni þakkaði formaður nefndarinnar þingmönnum kjördæmisins og tengdum aðilum fyrir vel unnin störf í samgöngumálum á svæðinu.
Samgöngunefnd SSS
19. nóvember 2005