Ævintýralegur vöxtur í strætóferðum úr Garði og Sandgerði
Á árinu 2011 hafa alls 26.942 farþegar nýtt sér strætó Sandgerðis og Garðs. Lagðar voru fram upplýsingar um farþegatölur í Strætó Sandgerðis og Garðs 2011 á síðasta fundi bæjarráðs Garðs.
Þar segir að ævintýralegur vöxtur hefur verið í fjölgun farþega sem nýta sér þessa ókeypis þjónustu. Virka daga eru farnar 10 ferðir á dag og 4 ferðir um helgar. Á árinu 2009 voru farþegar á þessari leið 3500 manns.