Bygg
Bygg

Fréttir

Ættu að skammast sín
Miðvikudagur 9. júlí 2008 kl. 17:27

Ættu að skammast sín

„Það er sorgarsaga að við skulum alltaf vera í glímu við að fá fjármagn til þess að halda uppi eðlilegri heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum. Hlutskipti þessarar stofnunar er ömurlegt,“ sagði Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslyndra í Suðurkjördæmi þegar hann var inntur eftir viðbrögðum vegna málefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Eins og fram hefur komið þarf  HSS að skerða þjónustu verulega vegna þess hve fé til rekstursins er naumt skammtað frá heilbrigðisráðuneytinu. Í næstu viku stendur til að leggja af heilsugæsluvakt á dagvinnutíma þannig að þeir sem þurfa á læknisþjónustu að halda eftir klukkan fjögur á daginn verða að leita til Reykjavíkur.

„Fólksfjölgun er mikil á svæðinu og það þarf að tryggja meira fjármagn í þetta en ríkisstjórnarflokkarnir gerðu það ekki á síðustu fjárlögum. Nú vantar talsvert uppá til að hægt sé að reka stofnunina sem slíka. Hvað þetta varðar eiga þeir sem standa að þessum stjórnarflokkum að skammast sín,“ sagði  Grétar ennfremur.

Grétar segir heilbrigðisráðherra upptekinn af öðru þessa dagna en að sinna málefnum HSS, s.s. að einkavæða sjúkrastofnanir.

„Við þingmenn kjördæmisins hljótum að þurfa koma saman fljótlega og álykta um þessi mál varðandi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,“ sagði Grétar. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn