„Ættargalli að geta ekki sagt nei“
Baldur býður sig fram til formanns Knattspyrnudeildar Keflavíkur.
„Keflavíkurliðið varð fyrst Íslandsmeistari árið 1964, árið sem ég fæddist. Og pabbi [Rúnar Júlíusson] átti stóran þátt í því að þeir náðu þeim titli. Síðan hef ég verið fastagestur á vellinum og alltaf lagt mitt af mörkum í starfinu, sem pabbi gerði líka. Þetta æxlaðist svo einhvern veginn þannig að maður er kominn á þann stað að maður er tilbúinn að setja aðeins meira effort í þetta en maður hefur gert,“ segir Baldur Guðmundsson í viðtali við Víkurfréttir, en hann býður sig fram til formanns knattspyrnudeildarinnar.
Vill aðskilja formann og framkvæmdastjóra
Spurður segir Baldur að þegar menn fari af stað í svona framboð vilji þeir yfirleitt fara fram á einhverjar breytingar. „Ég vil t.d. aðskilja hlutverk formanns og framkvæmdastjóra og býð mig fram einungis til formennsku. Það hefur verið leitað til mín núna og einnig fyrir fimm árum með að taka þetta að mér. Ég er alveg tilbúinn í þetta núna.“ Í tilkynningu sem birt var á stuðningsmannasíðu félagsins tekur Baldur fram að framboðið sé ekki með neinu móti atlaga að sitjandi stjórn og henni er hrósað fyrir vel unnin störf síðustu ár.
Ekki neitt unglamb sjálfur
„Við erum að tala um að fá smá endurnýjun í starfið og hafa áhrif til góðs og heilla fyrir félagið. Spurður um hvort kominn sé tími á kynslóðaskipti hlær Baldur og segist ekki vera neitt unglamb sjálfur. Leitað hafi verið til sín með að vera málsvari fyrir starfið. „Hugmyndin er að fjölga þeim sem taka þátt í þessu og eins og segir í tilkynningunni þá hvetjum við gott fólk til að bjóða sig fram í stjórn. Við erum engin klíka sem ætlar að ná yfirráðum og stjórna fólki eftir okkar höfði. Við ætlum bara að fara þarna inn til að bjóða fram okkar krafta til viðbótar við þá sem fyrir eru. Sonur minn og nokkrir vinir hans hafa áhuga á að vera með og ekki alveg búnir að loka framboðslistanum. Þar eru kannski öll kynslóðaskiptin.“
Ætlar ekki ryðja fólki út
Aðspurður að lokum hvort að hann sé ekki of upptekinn maður fyrir þetta hlutverk segist Baldur eiga erfitt með að skorast undan. „Þetta er ættargalli að geta ekki sagt nei. Mér finnst svo mikill gunguháttur í að taka ekki áskorunum. Ég er ekki að fara þarna inn til að ryðja fólki út, heldur bæta mér við. “