Ætlum að nýta frystihúsið í Sandgerði

Frystihúsið í Sandgerði, sem lengst af starfaði undir merkjum Miðness hf., komst í eigu Haraldar Böðvarssonar hf. við sameiningu fyrirtækjanna. Húsið er mjög vel útbúið og eftir að Nesfiskur hf. keypti það ásamt verbúð var það notað til þess að frysta loðnu á vertíðinni. Alls voru fryst rúmlega 300 tonn af loðnu á vegum Nesfisks hf. í frystihúsinu í Sandgerði og segir Bergþór að framleiðslan hafi gengið vel.
-- Við keyptum þessar eignir fyrst og fremst til þess að nýta frystigeymslurnar sem rúma 1700 tonn af afurðum því við erum ekki með neinar frystigeymslur hér í Garðinum. Þá höfum við getað nýtt verbúðina fyrir okkar starfsfólk og eins höfum við leigt út íbúðir til annarra, segir Bergþór Baldvinsson.