HSS
HSS

Fréttir

Ætla að róa kajak frá Ísafirði til Grænlands
Þriðjudagur 31. janúar 2012 kl. 18:05

Ætla að róa kajak frá Ísafirði til Grænlands

Fyrsti kajakróðurinn á milli Íslands og Grænlands er ráðgerður í sumar. Það eru Ísfirðingurinn Halldór Sveinbjörnsson og Njarðvíkingurinn Baldvin Kristjánsson, sem hyggjast róa hvor á sínum kajaknum frá Ísafirði yfir til Grænlands, 200 sjómílna leið á opnu hafi sem getur tekið 4-10 daga. Frá þessu er greint á mbl.is.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Róið verður í Golfstraumnum, sem liggur til norðurs, um 30% leiðarinnar, en þegar komið er inn í grænlenska landgrunnið liggur straumurinn til suðurs. Þeir hyggjast koma að landi við Blosseville-ströndina, en hún er um 700 km norðan við byggð á austurströnd Grænlands. Þaðan verður róið um 300 sjómílur til Kulusuk, sem taka mun um 10 daga.

Kajakarnir sem þeir Baldvin og Halldór nota eru byggðir á grænlenskri hönnun. Grindin hefur verið þróuð í 4000 ár, en dúkurinn er sérhannaður. Í honum er notað svokallað ofurtóg, sem hentar vel á þessari leið. Kajakinn er 16 kg á þyngd, en með manni og búnaði er heildarþyngd um 140 kg. Lengdin er 5,8 metrar og breiddin 55 cm.


Á myndinni hér að ofan má sjá Baldvin innan um grænlenskan ís. Myndin er af vef leiðangursins.

Sjá nánar um leiðangurinn hér.