Miðvikudagur 14. nóvember 2018 kl. 08:56
Ætla að funda með ráðherra um heilbrigðisþjónustu
Bæjarstjórn Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis hefur samþykkt samhljóða að óskað verði eftir fundi með heilbrigðisráðherra um heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu.
Það er gert með það að markmiði að íbúar sveitarfélagsins fái notið heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.