Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Miðvikudagur 29. mars 2000 kl. 15:58

Æsileg eftirför lögreglu

hófst í Reykjanesbæ. Endaði á hlaupum í Vogum. Lögreglan átti í æsilegum eltingaleik við ökumann svartrar jeppabifreiðar rétt fyrir miðnætti í fyrrakvöld. Eftirförin hófst í Keflavík og endaði með því að ökumaðurinn var handtekinn á hlaupum úti í móa í Vogum á Vatnsleysuströnd. Tilkynnt var um bifreið á ferð um Hafnargötu í Keflavík á tólfta tímanum í fyrrakvöld. Talið var að ökumaður bifreiðarinnar væri án ökuréttinda og ekki í ökuhæfu ástandi. Bifreiðinni var ekið upp Hafnargötu og áleiðis út úr bænum. Lögreglan komst í návígi við bílinn á Fitjum í Njarðvík og gaf þar stöðvunarmerki sem ökumaður jeppans virti ekki. Hófst þá eftirför, sem telja má æsilega, um vegi og vegleysur án þess að jeppinn stöðvaði. Var lögreglan á hælum ökumannsins alla leið inn í Voga. Önnur lögreglubifreið var á Reykjanesbraut og var þeirri bifreið ætlað það hlutverk að fara til móts við jeppann. Það tókst ekki þar sem ökumaður jeppabifreiðarinnar var fljótur í förum en hann stöðvaði bifreið sína við gamla ESSÓ skálann í Vogum og hljóp út í náttmyrkrið. Laganna verðir gerðu hið sama og náðu ökumanninum, móðir og másandi, skömmu síðar. Var maðurinn handtekinn og færður til stöðvar í Keflavík, auk þess sem jeppabifreiðin var tekin og færð sömu leið. Maðurinn fékk að gista fangageymslur lögreglunnar í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn mjög æstur eftir handtöku, neitaði að gefa þvagsýni og þurfti að halda honum meðan blóðsýni var tekið. Maðurinn mun hafa tekið bílinn í leyfisleysi við Heiðarholt í Keflavík. Hann er góðkunningi lögreglunnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024