Ægisgata hefluð í dag
 Ægisgata í Keflavík verður hefluð í dag og gerð akfær. Þetta staðfesti Halldór Magnússon hjá Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar í samtali við Víkurfréttir í morgun. Starfsmenn þjónsutumiðstöðvar bæjarins vörðu hurðar á bakhliðum verslana við Hafnargötu í gær og komu þannig í veg fyrir tjón eins og varð í vetur.Framtíð Ægisgötunnar er þó ennþá óljós en Halldór sagði að menn myndu funda um framtíð götunnar fljótlega.