Bygg
Bygg

Fréttir

Æfðu sig í að kasta út björgunarbátum
Þriðjudagur 16. ágúst 2005 kl. 17:12

Æfðu sig í að kasta út björgunarbátum

Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á varðskipinu Óðni tók þessa flottu mynd á Stakksfirði í gær þegar áhöfn TF-SYN æfði sig í að kasta út björgunarbátum nálægt varðskipinu. Eins og kunnugt er fylgir TF-SYN stundum þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún fer í löng björgunar- eða sjúkraflug og þá er gott öryggisins vegna að TF-SYN er þannig úr garði gerð að hægt er að kasta út úr henni björgunarbátum. Sama gildir einnig þegar TF-SYN er send til leitar að bátum sem hafa sent út neyðarkall eða dottið út úr sjálfvirka eftirlitskerfinu hjá Vaktstöð siglinga eða úr fjareftirliti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

VF-mynd: Guðmundur St. Valdimarsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn