Bygg
Bygg

Fréttir

Aðventublaðinu óvart þjófstartað
Mánudagur 23. nóvember 2009 kl. 09:41

Aðventublaðinu óvart þjófstartað

Eitthvað vorum við komin helst til í of mikið jólaskap hér á Víkurfréttum í síðustu viku þegar við aulýstum á nokkrum stöðum í blaðinu að Aðventublað Víkurfrétta kæmi út í þessari viku. Það er bara alls ekki rétt, því Aðventublaðið okkar kemur út fimmtudaginn 3. desember.


Blaðamenn Víkurfrétta hafa verið á kafi í jólaundirbúningi síðustu vikur og hafa dregið í hús þvílíkan jólaanda í formi lesefnis og mynda sem hæfa aðventunni og jólaundirbúningi. Með jólastjörnur í augunum þjófstörtuðum við því Aðventublaðinu með ótímabærum tilkynningum í síðasta blaði. Núna getum við hins vegar sagt að Aðventublað Víkurfrétta kemur út í NÆSTU viku ásamt hinni árlegu Jólalukku Víkurfrétta, sem er hlaðin glæsilegum vinningum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Aðventublaðið verður fullt af áhugaverðu efni tengt jólaundirbúningnum á aðventunni. Þeir auglýsendur sem ætla að tryggja sér pláss í tíma er bent að að setja sig í samband við okkar geðþekka auglýsingastjóra, hann Gunnar Einarsson í síma 421 0001 eða [email protected].