Aðventublað VF kemur út á morgun - og bæði blöðin á netið!

Aðventublaðið og Víkurfréttir í þessari viku koma inn á vef Víkurfrétta á morgun í einni heild. Aðventublaðið var að fara til prentunar og fyrstu blaðamenn á vakt í fyrramálið munu vinna blöðin í vefvænar útgáfur.
Við biðjum unnendur blaðsins út um hinn stóra heim afsökunar á töfunum, en álag hefur verið mikið á starfsmenn Víkurfrétta síðustu daga. Vonandi verða allir ferskir í fyrramálið.