Aðstoðarorkumálaráðherra BNA skoðaði nýja háskólann
Alexander Karsner, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti í gær, ásamt fyldarliði sínu, háskólann Keilir á Keflavíkurflugvelli . Karsner er í heimsókn á Íslandi til að kynna sér stöðu orkumála hér á landi. Með honum í för Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra.
Karsner kynnti sér starfsemi hins nýja háskóla og tilurð hans og var m.a. fræddur um starfsemi og virkjunarmál Hitaveitu Suðurnesja. Hann hefur einnig átt fundi með forsvarsmönnum Glitnis og Geysir Green Energy. Auk þess kynnti hann sér starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og skoðaði Hellisheiðarvirkjun.
VF-myndir / elg : Frá heimsókninni í gær.