Aðstaða júdódeildar UMFN verði bætt
Silja Dögg Gunnarsdóttir, Framsóknarflokki lagði fram tillögu á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ 8. feb. sl. um að aðstaða júdódeildar Ungmennafélags Njarðvíkur verði bætt. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þjálfari júdódeildar UMFN er Guðmundur S. Gunnarsson en hann var kjörinn maður ársins á Suðurnesjum af Víkurfréttum í upphafi árs.
Bókun Framsóknar vegna aðstöðuleysis Júdódeildar UMFN:
Júdódeild UMFN var stofnuð þann 8. september 2010 og er því orðin eins og hálfs árs. Nú eru um 120 einstaklingar skráðir í deildina og þar af eru um 95 iðkendur sem mæta reglulega á æfingar. Þar sem Framsókn á ekki fulltrúa í Íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar tel ég ástæðu til að leggja fram þessa bókun í dag og vekja þar með athygli á brýnni þörf deildarinnar til að komast í stærra og betra húsnæði.
Deildin æfir nú við mjög bágar aðstæður á efri hæð Reykjaneshallarinnar. Það húsnæði er þröngt, kalt, loftlaust og lekt. Á blautum dögum leka óslitnar vatnsbunur inn í æfingaherbergið og þar með liggja nýju júdódýnurnar undir skemmdum.
Starfið við deildina hefur hingað til verið unnið eingöngu í óeigingjörnu sjálfboðaliðastarfi og áhuginn er mikill, eins og iðkendatölur sýna. Það er brýnt að leyst verði úr húsnæðisvanda deildarinnar fljótt og örugglega. Leyfi ég mér að óska eftir stuðningi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að beita sér í málefnum júdódeildarinnar og bardagaíþrótta almennt.