HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 2. janúar 2001 kl. 12:10

Aðmírálshundurinn kom í leitirnar eftir 7 vikur

Heimilishundur fjölskyldu Davids Artzitsel, yfirmanns varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli kom í leitirnar eftir sjö vikur sl. laugardag.Hinn lágfætti Lobo varð viðskila við fjölskylduna eftir að hún lenti í bílslysi við Nesjavallaveg fyrir sjö vikum. Bíllinn rann út af Nesjavallavegi og valt fjórum sinnum. Allir fjölskyldumeðlimir sluppu ómeiddir en hundurinn hvarf. Hans var leitað en án árangurs strax eftir slysið og reglulega næstu vikur á eftir. Margoft sást til hans í nágrenni Elliðavatns sem er um 8 km. frá slysstaðnum. Björn Knútsson, flugvallarstjóri var nálægt því að ná hundinum 29. des. og lét fjölskylduna vita af því að Lobo litli væri á svæðinu en einnig höfðu margar aðrar ábendingar borist. Þrjátíu manna leitarflokkur vina og vandamanna aðmírálsfjölskyldunnar hófu leit snemma dags 30. des. Eftir hádegi kom hundurinn í leitirnar og hljóp í fangið á „föður“ sínum. David sagði hundinn horaðan og skelkaðan en að öðru leyti hressan. Hann var ánægður að vera kominn í faðm fjölskyldu sinnar á Keflavíkurflugvelli og var hinn rólegasti þegar tíðindamaður Víkurfrétta heimsótti hann og smellti nokkrum myndum.




Bílakjarninn
Bílakjarninn