HSS
HSS

Fréttir

Aðmíráll heimsótti Hjallatún
Föstudagur 27. september 2002 kl. 14:27

Aðmíráll heimsótti Hjallatún

Fjöldi svokallaðra aðmíráls-fiðrilda hefur borist til landsins með vindum frá Evrópu síðustu daga og vikur. Fréttir hafa borist frá allri suðurströnd landsins þar sem fólk hefur verið að finna þessu fallegu fiðrildi. Suðurnesjamenn hafa ekki farið varhluta af þessum fallegu skordýrum því talsvert hefur verið hringt á ristjórn Víkurfrétta og tilkynnt um þessi fiðrildi. Þannig vitum við um fiðrildi í Vogum, Grindavík, og Garði og fjölmargar hringingar hafa borist úr Reykjanesbæ.Í gær heimsótti aðmíráll krakkana á leikskólanum Hjallatúni. Það var veitt í krukku og ljósmyndara Víkurfrétta síðan falið að gefa því frelsi eftir myndatöku.

Meðfylgjandi mynd er af firildinu. Myndir af börnunum á Hjallatúni með feng sinn birtast í næsta tölublaði Víkurfrétta.
Bílakjarninn
Bílakjarninn