Aðkallandi að bæta öryggi á hafnarsvæðinu
Samráðhópur um öryggismál á hafnarsvæðinu í Grindavík telur aðkallandi að bæta öryggi á gatnamótum Ránargötu og Seljabótar. Hefur hópurinn óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 að fjárhæð 4.350.000 kr. til framkvæmda á svæðinu, bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi sínum þann 30. janúar sl. að leggja fé til framkvæmda á svæðinu.


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				