Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Aðgerða þörf í húsnæðismálum HSS
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 2. september 2019 kl. 11:01

Aðgerða þörf í húsnæðismálum HSS

- segir Markús Ingólfur Eiríksson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Svandís Svavardóttir heilbrigðisráðherra kynnti nýsamþykkta heilbrigðisstefnu fyrir Ísland á opnum fundi á HSS á dögunum. Á fundinum sagði Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, HSS, að stefnan markaði tímamót í heilbrigðismálum hér á landi, en ýmislegt væri enn ógert til að svara kröfum almennings um heilbrigðisþjónustu.
„Eitt lykilatriði í að vinna eftir heilbrigðisstefnunni er að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.“

Ekki tekið tillit til fjölgunar íbúa á Suðurnesjum
Markús sagði lýðheilsuvísa sýna glöggt að hvergi sé eins mikil þörf fyrir öfluga heilsugæsluþjónustu og einmitt hér á Suðurnesjum. Þá skjóti skökku við að ekki hafi verið tekið tillit til mikillar íbúafjölgunar á svæðinu, sem hafi aukið álag á stofnunina, bæði hvað varðar húsnæði og mönnun. Hvað varðar það síðarnefnda skiptir miklu að geta boðið upp á gott og aðlaðandi starfsumhverfi til að laða að fólk, en staðreyndin sé að HSS er í mikilli samkeppni við aðrar stofnanir í þeim efnum.

Starfsfólkið, sem sé sannarlega fáliðað og undir miklu álagi, hafi þó gert sitt besta í erfiðum aðstæðum, en eftir standi að íbúar í samfélaginu séu ekki ánægðir með þjónustuna og eitt af helstu vandamálunum sé ímyndarvandi. Nú sé þó verið að vinna í því að bæta bæði þjónustu og ímynd HSS, segir í frétt á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

„Við ætlum okkur að gera betur og við sjáum nú þegar mörg jákvæð teikn á lofti. Við erum með ungt, kraftmikið og vel menntað starfsfólk og erum að þróa breytt verklag á heilsugæslunni, meðal annars með bættum rafrænum lausnum, aukinni teymisvinnu og samskiptum við félagsþjónustu sveitarfélaganna á svæðinu,“ segir Markús.

Húsnæðisumbætur á HSS eru að sögn Markúsar algjört lykilatriði þegar horft er fram á veginn.

„Við þurfum að fara út í endurbætur og þar er auðvitað nauðsynlegt að hafa skýra langtímahugsun í þeim efnum, en það er engin spurning að aðgerða er þörf strax.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024