Bygg
Bygg

Fréttir

Aðgengi að líflegum Gunnuhver verður lagfært
Mánudagur 12. febrúar 2007 kl. 09:33

Aðgengi að líflegum Gunnuhver verður lagfært

Mikið líf hljóp í hverasvæðið á Reykjanesi á sama tíma og Reykjanesvirkjun hóf orkuframleiðsu sína. Gufuvirkni í Gunnuhver er t.a.m. meiri en hún hefur verið síðustu fjóra áratugi. Hverinn er meðal vinsælustu ferðamannastaða á Reykjanesi en talið er að allt að 140.000 gestir komi á Reykjanes árlega en meðal staða sem fólk skoðar eru Valahnjúkar, Valbjargagjá og Gunnuhver.

Í ljósi þess að mikið líf er hlaupið í hverasvæðið og þar hafa opnast nýir hverir, auk þess sem gamlir hverir eru allir hinir hressustu, þarf að laga til og færa göngubrýr á svæðinu. Einnig þarf að endurnbæta bílastæði og setja upp skýrari upplýsingar um aðsteðjandi hættu.
Í dag er um 30 metra göngubrú án handirða að útsýnispalli þar sem sést yfir Hveravelli og ofaní Gunnuhver. Þessi mannvirki þarf nú að færa og finna nýjan stað um 50 metrum vestan við núverandi staðsetningu. Einnig þarf að útbúa takmörkun á umferð um svæðið til að fyrirbyggja að slys geti átt sér stað. Byggja þarf nýja og breiðari göngubrú og þá þarf að lengja göngubrúnna því hverasvæðið hefur stækkað mikið.

Í sumar má búast við aukinni umferð um Reykjanes þar sem vegurinn frá Höfnum til Grindavíkur verður allur lagður bundnu slitlagi. Þá mun sýningin um Orkuverið Jörð, sem sett verður upp í Reykjanesvirkjun eiga eftir að draga að sér mikinn fjölda ferðamanna.
Ferðamálasamtök Suðurnesja og Hitaveita Suðurnesja hf. ætla í sameiningu að bæta aðgengið að Gunnuhver. Þá verður opnuð hreinlætisaðstað fyrir ferðamenn í Reykjanesvirkjun.
Bílakjarninn
Bílakjarninn