Fréttir

Aðeins minni sól í kortunum
Sólsetur í gærkvöldi. Ljósmyndina tók Einar Guðberg frá Pósthússtræti í Keflavík.
Laugardagur 14. júlí 2012 kl. 12:25

Aðeins minni sól í kortunum

Norðvestan 5-10 m/s, skýjað að mestu við Faxaflóa og líkur á smá vætu. Lægir í kvöld. Norðaustan 3-8 á morgun og bjartviðri. Hiti 12 til 20 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Norðvestan 3-8 m/s, skýjað að mestu og þurrt að kalla. Hiti 10 til 15 stig. Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun, bjartviðri og hiti 15 til 20 stig.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað með A-ströndinni. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast V-lands.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Hæg breytileg átt eða hafgola og víða bjart veður, en líkur á stöku síðdegisskúrum í innsveitum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast inn til landsins.

Á fimmtudag og föstudag:
Útlit fyrir vestlæga átt. Skýjað að mestu og líkur á vætu um landið V- og N-vert, en léttskýjað SA- og A-lands. Hiti breytist lítið.