Aðeins ein grein í Víkurfréttir á viku!

Víkurfréttir taka nú aðeins eina grein frá hverju framboði til birtingar í prentútgáfu blaðsins. Greinarnar séu ekki lengri en 2000 slög (Caracters - no spaces) eða allt að 2500 slög með stafabilum (Caracters - with spaces). Lengd texta sem skrifaður er í Word má sjá undir Tools í Word Count.
Síðasti skilafrestur á greinum í blaðið er til kl. 15 á mánudögum. Allar aðrar greinar fara beint inn á vefútgáfu Víkurfrétta. Þess er óskað að greinahöfundar bóki birtingu greinar í síðasta lagi á föstudeginum fyrir næsta blað.
Næsta tölublað Víkurfrétta kemur út 18. maí. Síðasta blað fyrir kosningar kemur hins vegar á miðvikudegi, 24. maí þar sem fimmtudaginn ber upp á uppstigningardag. Greinar í það blað þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 19. maí.
Páll Ketilsson, ritstjóri.
Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri.