Að villast neðanjarðar - gæsahúð og taugaspenna
Fyrir ári síðan skellti Ellert Grétarsson náttúruljósmyndari og hellaáhugamaður sér í hellaleiðangur sem fór ekki alveg eins og til var ætlast. Ellert villtist neðanjarðar og var lengi að finna leiðina út, enda geta ranghalar hellakerfisins verið sem völundarhús. Ellert komst upp á yfirborð jarðar á ný og myndskeið af ævintýrum hans rötuðu í heimsfréttinar.