Fréttir

Ábyrg upplýsingamiðlun við vá
Laugardagur 6. mars 2021 kl. 12:02

Ábyrg upplýsingamiðlun við vá

Keilir, Markaðsstofa Reykjaness og Íslenski ferðaklasinn bjóða upp á opinn fyrirlestur á netinu um ábyrga upplýsingamiðlun við vá, mánudaginn 8. mars kl. 11 - 12.

Upplýsingamiðlun er og ætti að vera hluti af viðbragðsáætlun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Á fyrirlestrinum fer Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu, útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, yfir viðbragðsáætlun Íslandsstofu og þá ferla sem fara í gang samkvæmt áætluninni við náttúruvá. Sigríður Dögg fer einnig yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þessa ferla og góða starfshætti þegar náttúruvá ber að dyrum.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Viðburðurinn er skipulagður af Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness, Keilis, Íslenska ferðaklasans og Markaðsstofu Hafnarfjarðar.

Skráning fer fram hér og er fundurinn öllum opinn og án endurgjalds. Hlekkur á viðburðinn verður sendur út stuttu fyrir fundinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn