Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Mánudagur 4. september 2000 kl. 11:19

Ábendi opnar í Reykjanesbæ

Ábendi hefur nú opnað skrifstofu í Reykjanesbæ og býður fyrirtækjum og stofnunum á Suðurnesjum upp á ráðningaþjónustu og ráðgjöf á sviði starfsmannamála en fyrirtækið hefur verið starfandi í Reykjavík síðan 1986. Ábendi hefur fjölda manns á skrá bæði af Suðurnesjum sem og af höfuðborgarsvæðinu sem er að leita sér að vinnu. Einnig býður Ábendi upp á fjölbreytta ráðgjöf á sviði starfsmannamála m.a. varðandi ráðningarsamninga, starfslýsingar, starfsmannahandbækur og endurmenntun starfsmanna. Með opnun þessarar skrifstofu aukast einnig möguleikar fólks á Suðurnesjum sem er að leita sér að vinnu. Einnig opnar þetta möguleika fyrir fólk á höfuðborgarsvæðinu að leita sér að hentugri vinnu á Suðurnesjum. Að sögn Helgu S. Harðardóttur atvinnuráðgjafa Reykjanesbæjar er hér á ferðinni kærkomin nýjung í atvinnumálum á Suðurnesjum. Helga bendir á að með þessu bjóðist fyrirtækjum og stofnunum á Suðurnesjum þjónusta og ráðgjöf á sviði starfsmannamála sem ekki hefur áður verið til staðar á Suðurnesjum. Skrifstofa Ábendis í Reykjanesbæ er að Tjarnargötu 2 (fyrir ofan Bústoð) og er síminn þar 421-6230. Þeir sem eru í atvinnuleit og hafa áhuga á að setja sig á skrá hjá Ábendi geta komið á staðinn og skráð sig þar eða skráð sig á heimasíðu Ábendis www.abendi.is. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á [email protected].
Bílakjarninn
Bílakjarninn