Abbas kominn til landsins
Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu ásamt fríðu föruneyti, en hann mun funda með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í fyrramál og snæða hádegisverð á Bessastöðum. Síðdegis mun hann eiga fund með Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra.
Abbas er á leið til Bandaríkjanna til fundar við George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í Washington, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.
VF-myndir/Þorgils