Áætla að starfsmenn á Keflavíkurflugvelli verði 16.000 árið 2040
Í ár er gert ráð fyrir að störfum hjá þeim fyrirtækjum sem eru með starfsemi á Keflavíkurflugvelli muni fjölga um 1.700 og um 1.100 á því næsta. Miðað við farþegaspá Isavia er síðan gert ráð fyrir að störfum fjölgi að meðaltali um 400 til 500 á ári til ársins 2040, og að það ár muni rúmlega 16.000 manns starfa á flugvellinum. Strax árið 2018 verður Keflavíkurflugvöllur orðinn stærsti vinnustaður landsins.
Miðað við gögn frá Alþjóðasamtökum evrópskra flugvalla er Ísland önnur mesta flugþjóð Evrópu ef horft er til beinna starfa á flugvöllum sem hlutfall af fjölda íbúa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Isavia þar sem lagt er mat á það hvaða þýðingu uppbygging Keflavíkurflugvallar hefur til framtíðar. Í henni eru dregnar saman upplýsingar um áætlanir og spár er varða framtíðaruppbygginu á Keflavíkurflugvelli. Skýrslan var kynnt á morgunverðarfundi á Hilton hótelinu í Reykjavík í morgun. Fundurinn var sendur út beint á vef Víkurfrétta og má nálgast upptökuna hér.
Að sögn Elínar Árnadóttur, aðstoðarforstjóra Isavia, er Keflavíkurflugvöllur stóra gáttin inn í landið og mikilvægt að vandað verði til verka við þau stækkunaráform á flugvellinum sem nauðsynleg eru til þess að hann geti staðið undir vaxandi farþegafjölda á komandi árum. „Með gerð þessarar skýrslu vill Isavia kveikja umræðu um uppbyggingu Keflavíkurflugvallar og sýna ábyrgð í að draga fram bæði þá kosti og áskoranir áskoranir sem henni fylgja, segir hún.“
Í ár stefnir í að heildarfjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll hafi vaxið um 37% á milli ára og á mesta annatímanum flugu 25 flugfélög til Keflavíkur, miðað við 11 árið 2010. Á allra næstu árum er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti, en þó ekki jafn miklum hlutfallslega og undanfarin ár. Eftir árið 2025 er spáð um 3 prósent vexti í farþegafjölda á ári hverju, og eru þar taldir bæði þeir sem koma inn í landið og þeir sem millilenda hér á landi á leið sinni til annarra landa.
Skýrslan byggir á áætlunum um uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli, farþegaspá Isavia, spá um þróun í ferðaþjónustu á Íslandi og alþjóðlegum mælikvörðum. Skýrslan er unnin af ráðgjafafyrirtækinu Aton fyrir Isavia.