Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Á þriðja hundrað þúsund í hraðasekt
Mánudagur 4. mars 2019 kl. 11:27

Á þriðja hundrað þúsund í hraðasekt

Níu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók var erlendur ferðamaður en bifreið hans mældist á 141 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hraðaksturinn varð honum dýrkeyptur því sektin nemur 210 þúsund krónum.  Skráningarnúmer voru fjarlægð af sjö bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Þá setti lögregla miða á annan tug bifreiða sem var ólöglega lagt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024