Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Á ofsahraða með 3ja ára barn í bíl
Mánudagur 24. júní 2013 kl. 15:14

Á ofsahraða með 3ja ára barn í bíl

Erlendir ferðamenn stilltir inn á hraðbrautarakstur að sögn lögreglu.

Lögreglan á Suðurnesjum kærði í lok síðustu viku 45 ökumenn fyrir of hraðan akstur og einn til viðbótar fyrir fíkniefnaakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Annar sem ók á 137 kílómetra hraða var með þriggja ára barn, án nokkurs öryggisbúnaðar, í aftursæti bifreiðar sinnar. Nokkrir þeirra, sem óku of hratt eru erlendir ferðamenn og kvaðst einn þeirra enn vera stilltur inn á hraðbrautaakstur.

Þá voru níu ökumenn til viðbótar kærðir fyrir að sinna ekki stöðvunar- eða biðskyldu, þrír voru ekki í öryggisbelti og einn talaði í síma án handfrjálss búnaðar. Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af sex bifreiðum, sem ýmist voru ótryggðar eða höfðu ekki verið færðar til skoðunar innan tilskilins tímaramma.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024