Á fjórða tug ábendinga vegna mengunar frá kísilveri
Fulltrúar frá Umhverfisstofnun munu mæta á fund bæjarráðs Reykjanesbæjar 1. desember næstkomandi. Ráðið ályktaði í gær vegna áhyggja af lykt- og reykmengun frá kísilveri United Silicon í Helguvík. Á vef Reykjanesbæjar kemur fram að á fjórða tug ábendinga og kvartana hafi borist Umhverfisstofnun undanfarna daga vegna lykt- og rykmengunar frá kísilverinu. Þá hefur Umhverfisstofnun upplýsingar um að að minnsta kosti einn einstaklingur hafi leitað til læknis vegna einkenna sem kunna að tengjast loftmengun á svæðinu, að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur, sviðsstjóra hjá stofnuninni.
Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í næstu viku munu fulltrúar frá Umhverfisstofnun leitast við að svara þeim spurningum og vangaveltum sem munu berast þeim frá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ. Sigrún hvetur íbúa í Reykjanesbæ til að láta í sér heyra svo hægt sé að fá góða yfirsýn yfir málið. Netfang Umhverfisstofnunar er [email protected] en einnig má senda ábendingar á vef stofnunarinnar, https://ust.is/hafa-samband/
United Silicon birti yfirlýsingu í Víkurfréttum í gær þar sem leitast er við að svara kvörtunum íbúa sem hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum undanfarna daga. Þar kemur fram að brenna hafi þurft mikið magn af timbri til að baka rafskaut brennsluofnins og að hvorki reykurinn, sem kom vegna þess að reykhreinsivirki verksmiðjunnar var ekki notað, né lyktin sé skaðlegri en frá brennu á gamlárskvöld. Þetta hafi verið áður en verksmiðjan fór í gang og ætti því að vera úr sögunni nú þegar framleiðsla sé hafin.