Fréttir

Á batavegi eftir gaseitrun við Bláa lónið
VF/Ísak Finnbogason
Fimmtudagur 21. mars 2024 kl. 20:27

Á batavegi eftir gaseitrun við Bláa lónið

Starfsmaður Bláa Lónsins þurfti að leita á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna. Veikindin eru rakin til gasmengunar en töluvert magn brennisteinsdíoxíðs mældist í lofti víða á Reykjanesi í gær. Starfsmaðurinn var að vinna utandyra í nágrenni lónsins á gröfu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu.

Bláa Lónið hefur verið lokað frá því að síðasta gos hófst og því voru engir gestir á svæðinu. Svo virðist sem gasmengun hafi slegið niður á svæðinu sem unnið var á. Þegar veikindi mannsins komu upp var honum ekið til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til aðhlynningar. Að lokinni skoðun fékk hann að fara heim og er hann nú á batavegi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Öryggisverðir í Bláa Lóninu bera gasmæla og fylgst er með loftgæðum í kringum lónið. Þá eru staðbundnir gasmælar á nokkrum stöðum í Bláa Lóninu, bæði innandyra og utandyra. Enginn slíkur mælir var þó á því svæði sem viðkomandi var við störf á í gær. Brugðist var við málinu um leið og það kom upp.

Lögreglan og Vinnueftirlitið eru upplýst um málið og þegar hefur verið óskað eftir samstarfi við Veðurstofu Íslands um frekari uppsetningu mælabúnaðar á athafnasvæði Bláa Lónsins í Svartsengi til að geta fylgst nánar með loftgæðum. Sérfræðingar frá verkfræðistofunni Eflu eru að leiða þá vinnu.


„Okkur er auðvitað brugðið vegna þessa atviks og við tökum það mjög alvarlega. Við erum í góðu sambandi við starfsmanninn sem um ræðir og við erum mjög þakklát fyrir að þetta fór ekki verr. Sömuleiðis viljum þakka þeim starfsmönnum okkar sem brugðust hratt og vel við,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.