Fréttir

Á annan tug starfsmanna án atvinnuleyfis
Föstudagur 16. júní 2017 kl. 10:37

Á annan tug starfsmanna án atvinnuleyfis

Lögreglan á Suðurnesjum fór nýverið, ásamt fulltrúum frá Vinnumálastofnun, í eftirlit á nokkra vinnustaði í umdæminu til að athuga hvort skráningar starfsmanna væru með lögbundnum hætti. Eftirlitið er þáttur í aðgerðardögum Europol gegn vinnumansali.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Farið var á fimm vinnustaði og á þremur þeirra reyndust vera samtals tólf starfsmenn sem ekki voru með atvinnuleyfi. Forráðamönnum viðkomandi fyrirtækja var gerð grein fyrir því að málum yrði fylgt eftir þar til að þau væru komin í lag.

 

Lögregla og Vinnumálastofnun munu á næstu dögum heimsækja fleiri vinnustaði í umdæminu í sömu erindagjörðum. Þar á meðal verða veitingahús og skemmtistaðir.