Föstudagur 20. september 2013 kl. 13:13
Á annað hundrað lítra af olíu stolið
Lögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni tilkynnt um olíuþjófnað í umdæminu. Allt að 160 lítrum hafði verið stolið af vörubifreið sem stóð á vinnusvæði í Keflavík. Sá eða þeir sem þarna voru að verki unnu engan skemmdir á bifreiðinni, en olíutankur hennar var ólæstur.