Fréttir

Á 150 km hraða á Garðskagavegi
Miðvikudagur 25. maí 2016 kl. 06:00

Á 150 km hraða á Garðskagavegi

- Sektin er 130.000 krónur

Allmargir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðastliðnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 150 km hraða á Garðskagavegi þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumaðurinn mun þurfa að greiða 130.000 króna sekt og var sviptur ökuleyfi í  einn mánuð og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Þá var einn ökumaður til viðbótar handtekinn vegna ölvunaraksturs og annar vegna fíkniefnaaksturs. Sá síðarnefndi var réttindalaus undir stýri.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024