92% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir í hverri viku

Að sögn Páls Ketilssonar ritstjóra Víkurfrétta eru þetta ótrúlegar tölur og sýna að Víkurfréttir er langsterkasti fjölmiðillinn á Suðurnesjum. „Það að einhver fjölmiðill hafi nær 100% snertingu er í sjálfu sér ótrúlegt. Það hlýtur að nálgast heimsmet. Þetta eru ánægjulegar niðurstöður og mikil hvatning fyrir starfsfólk Víkurfrétta að halda áfram á sömu braut í harðnandi samkeppni á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Ég vil nota tækifærið og þakka Suðurnesjamönnum fyrir frábæra samvinnu og mikla tryggð í gegnum árin,“ sagði Páll Ketillson ritstjóri Víkurfrétta.