Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

90 ár frá því að konur hlutu kosningarétt
Sunnudagur 19. júní 2005 kl. 12:57

90 ár frá því að konur hlutu kosningarétt

Í dag eru níutíu ár frá því að íslenskar konu hlutu kosningarétt. Af því tilefni er boðað til hátíðarhalda á Þingvöllum í dag. Dagskráin hefst formlega klukkan eitt en þá verður gengið niður Almannagjá þar sem heyra má í lúðrum og sjá valkyrjur og dansandi álfameyjar undir stjórn Auðar Bjarnadóttur.

Því næst verður farið að Drekkingarhyl og 18 rósir verða settar í hylinn í minningu þeirra 18 kvenna sem drekkt var þar.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, flytur hátíðarávarp.

Í kvöld, klukkan 20:30 verður haldin kvennamessa í Laugardal. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar.


Mynd : Þingvellir
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024