HSS
HSS

Fréttir

9,5 milljónum króna úthlutað til atvinnusköpunar í sjávarbyggðum Suðurnesja
Föstudagur 24. júní 2011 kl. 15:55

9,5 milljónum króna úthlutað til atvinnusköpunar í sjávarbyggðum Suðurnesja

Iðnaðarráðuneytið hefur verið úthlutað styrkjum úr verkefninu Atvinnusköpun í Sjávarbyggðum, sem byggir á tekjum af svokölluðum skötuselspeningum, þ.e. sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til að veiða skötusel og til frístundaveiða, sbr. lög um stjórn fiskveiða. 

Mikill áhugi var á verkefninu en alls bárust 123 umsóknir víðsvegar af landinu. Eftir umfjöllun stjórnar Atvinnusköpunar í sjávarbyggðum var gerð tillaga um að styrkja 32 verkefni,  sem var í framhaldinu staðfest af iðnaðarráðherra. Af þessum 32 verkefnum voru þrjú á Suðurnesjum sem fengu styrk upp á samtals 9,5 milljónir króna.

Áhersla var lögð á  að styðja verkefni sem fela í sér nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og hugverk sem  byggja á styrkleikum sjávarbyggða.  Ennfremur var horft til þess að styrkja stærri samstarfsverkefni  fyrirtækja, háskóla og rannsóknarstofnanna þar sem fram komu skýrar hugmyndir um afurðir í formi vöru eða þjónustu sem skila varanlegum verðmætum og atvinnu.

Verkefnin á Suðurnesjum sem fengu stuðning eru:

Álasund ehf, Reykjanesbæ, verkefnið YFIR HAFIÐ OG HEIM kr. 5.000.000
MPF Ísland, Grindavík, verkefnið FiskiTofu kr.3.000.000
Rúnar Árnason, Reykjanesbæ, verkefnið Aircraft Asset Managment kr. 1.500.000

Bílakjarninn
Bílakjarninn