89 atvinnuflugnemar hafa útskrifast á árinu hjá Keili
Flugakademía Keilis útskrifaði átján atvinnuflugnema laugardaginn 31. ágúst síðastliðinn. Með útskriftinni hafa samtals 89 atvinnuflugnemar lokið bóklegu námi í skólanum það sem af er ársins og samtals 307 nemendur frá upphafi skólans árið 2009.
Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp, og Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar stýrði athöfninni.
Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp, og Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar stýrði athöfninni.
Dúx var Jacob Dahl Lindberg með 9,75 í meðaleinkunn og fékk hann bókagjöf frá Icelandair og flugtíma í ALSIM frá Keili - Flugskóla Íslands. Ræðu útskriftarnema flutti Philip Ljungberg frá Svíþjóð og sagði hann tímann á Íslandi hafa verið frábæran. Til dæmis hafi verið sérstakt að fá fjórar gerðir af veðri á einum sólarhring og að hiti hafi verið rétt við frostmark á sumardaginn fyrsta.
Áfangaskipt og samtvinnað atvinnuflugnám hefst næst í byrjun september. Námið verður í boði á höfuðborgarsvæðinu og á Ásbrú, auk þess sem hægt verður að leggja stund á hluta bóklegs náms í fjarnámi. Rétt eins og áður mun verkleg flugkennsla fara fram á bæði alþjóðaflugvellinum í Keflavík og Reykjavíkurflugvelli.
Dúx var Jacob Dahl Lindberg frá Svíþjóð með 9,75 í meðaleinkunn.
Ræðu útskriftarnema flutti Philip Ljungberg frá Svíþjóð og sagði hann tímann á Íslandi hafa verið frábæran.