865 milljóna kr. hagnaður hjá HS Orku 2010 - eignir metnar á rúma 40 milljarða
HS Orka hagnaðist um 865 milljónir króna á árinu 2010 og er því talsvert minni en árið á undan en þá var hagnaðurinn 6,8 milljarðar.
Þetta kom fram á stjórnarfundi félagsins í gær en ársreikningur var samþykktur þar.
Rekstrartekjur HS Orku hækkuðu lítillega frá árinu áður eða úr 6,2 í 7 milljarða kr. Eigið fé félagsins er 17,3 milljarðar króna og eiginfjárshlutfallið 41,6%. Alls eru eignir HS Orku metnar á 41,5 milljarð króna. Skuldir félagsins eru 24,2 milljarðar króna.
Viðræður standa nú yfir milli íslenskra lífeyrissjóða og HS Orku um að þeir kaupi 25% hlut í félaginu og styttingu á leigutíma jarðvarmaauðlinda í 30-40 ár úr 65 árum.
Mikil umræða og styr hefur staðið um eignarhaldið á HS Orku sem er Magma Energy Sweden en það er sænskt skúffufyrirtæki kanadíska félagsins Magma Energy Corp.