85 nemendur útskrifast í fyrstu útskrift Keilis
-Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri segir fatlaða ekki búa við fullt jafnrétti til háskólanáms.
Í dag útskrifaði Keilir, miðstöð vísinda fræða og atvinnulífs, sína fyrstu nemendur. Alls útskifuðust 85 manns af Háskólabrú Keilis, þar af 33 af félagsvísinda- og lagadeild, 8 af hugvísindadeild, 24 af verk- og raunvísindadeild og 20 af viðskipta- og hagfræðideild.
Bestum árangri náði Elín Guðlaug Hómarsdóttir með meðaleinkunnina 9,41, Rannveig Kristín Randversdóttir með 9,23 og Sverrir Ágústsson með 9,22 en þau eru öll úr verk- og raunvísindadeild.
Flestir útskrifanema eru að hefja nám við innlenda eða erlenda háskóla nú í haust og munu m.a. leggja stund á verkfræði, tölvunarfræði, stærðfræði, ensku , íslensku, rússnesku, kennslufræði, lögfræði, viðskiptafræði, félagsfræði, félagsráðgjöf, sálfræði, frumkvöðlafræði, bókmenntafræði og sagnfræði, svo að nokkur dæmi séu tekin.
Í útskriftarræðu sinni gagnrýndi Runólfur Ágústsson aðgengi fatlaðra að háskólanámi hérlendis og benti á að þeir skólar sem taki inn fatlaða nemendur, þurfi sjálfir að bera af slíku verulegan kostnað. Sem dæmi nefndi hann að kostnaður Keilis vegna aðkeyprar túlkaþjónustu frá Samskiptamiðstöð heyrnalausra hlaupi á milljónum króna næsta háskólaár. Keilir sé nýr skóli sem ekki hafi úr digrum sjóðum að spila og staðan því þannig að ef annar hæfur umsækjandi sem þyrfti á sambærilegri þjónustu að halda myndi sækja um nám við skólann, yrði að hafna honum af því að hann væri fatlaður og fjármunir ekki til.
Texti: Keilir Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson