831 án atvinnu í Reykjanesbæ
Alls eru 831 einstaklingar í Reykjanesbæ á atvinnuleysisskrá í ágúst 2011 og 1.210 á Suðurnesjum. Þetta kom fram í upplýsingum sem framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar lagði fram á síðasta fundi ráðsins um stöðuna á vinnumarkaði í ágúst 2011. Jafnframt var lögð fram áfangaskýrsla samstarfshóps á Suðurnesjum frá júní 2011 um velferðarvaktina.